Fara beint í efnið

Hvernig eru veitingastaðir flokkaðir vegna rekstrarleyfa?

Veitingastaðir eru flokkaðir í þrjá flokka:

  • Flokkur 1: Staður án áfengisveitinga. (Ekki þarf leyfi sýslumanns fyrir veitingastað í flokki I)

  • Flokkur 2: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu svo sem með háværri tónlist og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.

  • Flokkur 3: Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.

Hér má finna nánari upplýsingar um flokka og tegundir veitingastaða.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?