Fara beint í efnið

Hvaða fylgigögn þurfa að fylgja umsókn um leyfi til að brenna sinu?

  • Uppdráttur og lýsing á svæðinu þar sem óskað er eftir að brenna sinu

  • Afrit af umsögnum og samþykki hlutaðeigandi búnaðarsambands

  • Afrit af umsögnum og samþykki hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar

  • Afrit af umsögnum og samþykki hlutaðeigandi slökkviliðs

Umsóknina þarf að senda til embættis sýslumanns í því umdæmi sem sinubrennan á að fara fram. Sýslumaður fer yfir umsóknina og gefur út leyfisbréf ef öll skilyrði eru uppfyllt.

Hér má finna nánari upplýsingar um leyfi til að brenna sinu.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?