Fara beint í efnið

Hvaða gögn þurfa að fylgja með umsókn um happdrættisleyfi?

Fylla þarf út umsókn um leyfi til að reka happdrætti og senda á viðkomandi sýslumanns- embætti sem fer yfir umsóknina og gefur út leyfisbréf ef öll skilyrði eru uppfyllt. 

Umsóknir má einnig senda í tölvupósti á netfangið: sudurland.leyfi@syslumenn.is

Í umsókninni þarf meðal annars að koma fram:

  • Fjöldi miða

  • Miðaverð

  • Fjöldi vinninga

  • Heildarverðmæti vinninga

  • Dagsetning útdráttar

Með umsókninni þarf að fylgja listi yfir vinninga og verðmæti hvers þeirra.

Hlutfall verðmætis vinninga af heildsöluverði útgefinna miða skal að lágmarki vera 16,67%.

Ekkert gjald er greitt fyrir þessi leyfi.

Hér má finna nánari upplýsingar um umsókn um happdrættisleyfi.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?