Fara beint í efnið

Hver eru skilyrði þess að fá tækifærisleyfi?

Umsækjandi skal uppfylla eftirfarandi skilyrði, eins og við á, og veita heimild til að viðeigandi gögn séu sótt því til staðfestingar. Þetta á við hvort sem umsækjandi er einstaklingur eða forsvarsmaður lögaðila:

  • Hafa búsetu á Íslandi. Ríkisborgarar ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins og aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyingar eru undanþegnir búsetuskilyrðinu.   

  • Vera lögráða og hafa náð 18 ára aldri á umsóknardegi. Feli rekstrarleyfi í sér heimild til áfengisveitinga skal umsækjandi vera lögráða og hafa náð a.m.k. 20 ára aldri.

  • Hafa forræði á búi sínu.

  • Hafa tilkynnt atvinnurekstur til skráningar hjá Skattinum.

  • Hafa ekki verið sviptur leyfi til rekstrar gististaðar, veitingastaðar eða áfengisveitinga á síðustu fimm árum frá umsókn.

  • Skulda ekki skatta, opinber gjöld eða iðgjöld í lífeyrissjóð sem nema samanlagt hærri fjárhæð en 1.000.000 kr. 

  • Hafa ekki á síðustu fimm árum gerst sekur um háttsemi sem varðar við almenn hegningarlög, lög um ávana- og fíkniefni, lög um hlutafélög, lög um einkahlutafélög, lög um bókhald, lög um ársreikninga, lög um tekjuskatt, lög um virðisaukaskatt, lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, lög um tryggingagjald né lög þessi sem og reglur settar samkvæmt tilgreindum lögum. 


Hér má finna nánari upplýsingar um tækifærisleyfi. 


Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?