Fara beint í efnið

Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að fá starfsleyfi ökukennara?

Til þess að sjá um kennslu í akstri bifreiða og bifhjóla þarf að sækja um starfsleyfi ökukennara til sýslumanns í því umdæmi þar sem umsækjandi býr.  

Starfsleyfi gildir í fimm ár, þó ekki lengur en umsækjandi hefur ökuréttindi.

  • Að vera orðinn 21 árs.

  • Að hafa ekið bifreið að staðaldri síðustu þrjú árin.

  • Að hafa staðist sérstakt próf fyrir ökukennara að afloknu ökukennaranámi.

Heimilt er að synja manni um starfsleyfi til ökukennslu hafi hann verið dæmdur í sakamáli fyrir brot sem varðar sviptingu starfsleyfis.

Með umsókn þarf að fylgja prófskírteini og læknisvottorð.

Fyrir löggildingu þarf að greiða 3.000 krónur og fyrir sakavottorð þarf að greiða 2.700 krónur. Nýtt ökuskírteini kostar 8.600 krónur

Hér má finna nánari upplýsingar um starfsleyfi ökukennara.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?