Vaxtabætur
Fjárhæðir vaxtabóta
Með því að tilgreina fjölskyldustöðu og skrá upplýsingar um tekjur, eignir og skuldir er hægt að reikna út vaxtabætur.
Reiknivél vaxtabótaVaxtabætur í álagningu 2026 vegna vaxtagjalda árið 2025
Tegund heimilis | Hámarksfjárhæð vaxtabóta |
|---|---|
Fyrir einhleypa | 420.000 kr. |
Fyrir einstætt foreldri | 525.000 kr. |
Fyrir hjón og sambúðarfólk | 630.000 kr. |
Stofn til útreiknings
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af 1), 2) og 3).
Vaxtagjöld samkvæmt reit 87 og/eða 166 á framtali.
7% af eftirstöðvum skulda samkvæmt reit 41, 45 eða 167 á skattframtali.
Hámark vaxtagjalda, sem er:
Hjá einhleypum | 840.000 kr. |
Hjá einstæðu foreldri | 1.050.000 kr. |
Hjá hjónum og sambúðarfólki | 1.260.000 kr. |
Tekjutenging
Frá vaxtagjöldum skv. framansögðu dragast 8,5% af tekjustofni og er mismunurinn reiknaðar vaxtabætur.
Tekjustofn til útreiknings vaxtabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að fjármagnstekjur eru meðtaldar og laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á vaxtabótum. Sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar kemur hins vegar ekki inn í útreikning vaxtabóta.
Eignatenging
Vaxtabætur, eins og þær eru reiknaðar út hér að ofan, skerðast ef eignir að frádregnum skuldum fara yfir mörk, sem eru:
Hjá einhleypum/einstæðu foreldri | 7.500.000 kr. |
Hjá hjónum/sambúðarfólki | 12.000.000 kr. |
Réttur til vaxtabóta fellur niður um leið og nettóeign verður: | |
|---|---|
Hjá einhleypum/einstæðu foreldri | 12.000.000 kr. |
Hjá hjónum/sambúðarfólki | 19.200.000 kr. |
Vaxtabætur skiptast jafnt á milli hjóna/sambúðarfólks. Vaxtabætur sem eru lægri en 5.000 kr. á mann falla niður.
Þjónustuaðili
Skatturinn