Fara beint í efnið

Umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu - atvik árið 2025 og síðar

Forsendur fyrir greiðslur

Réttur getur myndast til bótagreiðslu ef eitt af eftirfarandi á við:

  • Umsækjandi varð fyrir líkamlegu eða andlegu tjóni við sjúkdómsmeðferð eða rannsókn

  • Maki umsækjanda lést vegna tjóns við sjúkdómsmeðferð eða rannsókn

  • Foreldri umsækjanda undir 18 ára aldri lést vegna tjóns við sjúkdómsmeðferð eða rannsókn

  • Foreldrar, eða eftir atvikum forsjáraðilar, vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu,
    andvana fæðingar eftir 22 vikna meðgöngu eða vegna andláts barns undir 18 ára
    aldri, ef tjón varð við sjúkdómsmeðferð eða rannsókn

Tjónið þarf að hafa átt sér stað á einu af eftirfarandi:

  • Heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi hér á landi

  • Öðrum heilbrigðisstofnunum í eigu ríkisins, í heild eða hluta

  • Annarri heilbrigðisþjónustu hér á landi

  • Í sjúkraflutningi innanlands

  • Heilbrigðisþjónustu eða sjúkraflutningi erlendis, svo lengi sem þú ert að sækja nauðsynlega meðferð sem ekki er í boði á Íslandi á vegum Sjúkratrygginga.

Einnig skal hægt að rekja tjónið til eins af eftirfarandi:

  • Meðferð var ekki hagað eins vel og hægt var miðað við þekkingu og reynslu

  • Bilun eða galla varð í tæki, áhöldum eða öðrum búnaði sem var notaður

  • Fylgikvilla meðferðar, svo lengi sem:

    - Hann er tiltölulega sjaldgæfur (sjaldnar en í 1-2% tilfella)

    - Er alvarlegur miðað við grunnsjúkdóminn sem meðferð átti að lækna

    - Tjónið er meira en svo að sanngjarnt sé að sjúklingur þoli það bótalaust

  • Slys sem verður vegna meðferðar eða rannsóknar

  • Læknisfræðilegrar tilraunar sem var ekki vegna sjúkdómsgreiningu né meðferðar

  • Gjöf umsækjanda á líffæri, vef, blóði eða öðrum líkamsvökva

  • Bólusetningar með bóluefni sem heilbrigðisyfirvöld leggja til, vegna tjóns sem hlýst af
    eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, svo lengi sem:

    • Meðferð var ekki hagað eins vel og hægt var miðað við þekkingu og reynslu

    • Fylgikvilli sé sjaldgæfur og alvarlegur

  • Notkunar lyfs sem er ekki samkvæmt viðurkenndum ábendingum eða vegna
    notkunar lyfs sem ekki hefur hlotið markaðsleyfi, ef heilbrigðisyfirvöld fara fram á eða
    krefjast notkunar til að varna skaða af völdum utanaðkomandi þátta.


Að öllum ofangreindum skilyrðum fullnægðum er bótaréttur ákvarðaður. Ef bótaupphæð
reynist hærri en lágmarksgreiðsla bóta er umsókn samþykkt.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar