Tökum höndum saman: Öll heil heim
23. apríl 2025
Vinnueftirlitið hleypti í dag af stokkunum aðgerðavakningunni #Tökum höndum saman: Öll heil heim. Markmiðið er að hvetja vinnustaði um allt land til að taka höndum saman til að tryggja öryggi og vellíðan á vinnustöðum þannig að öll komi heil heim.

"Við viljum hvetja vinnustaði landsins til að gera öryggi og vellíðan starfsfólks að sjálfsögðum hluta af daglegri starfsemi. Öll viljum við upplifa öryggi og vellíðan í vinnuumhverfinu. Þá eru meiri líkur á að við eigum heilbrigð samskipti, sýnum ábyrgð í starfi og náum árangri saman," segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins.
Áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað er mikilvæg leið að því marki og er grunnur að góðu vinnuverndarstarfi. Samkvæmt lögum ber öllum vinnustöðum, stórum sem smáum, að vera með slíka áætlun. Hún á að fela í sér áhættumat og áætlun um heilsuvernd og forvarnir.
Til að auðvelda vinnuna við gerð áætlunarinnar hefur Vinnueftirlitið gert fræðslumyndbönd sem skýra markmið hennar og tilgang. Það er engin ein leið betri en önnur við gerð hennar en á vef stofnunarinnar má finna verkfæri sem nota má til stuðnings. Má þar nefna dæmi um ferli við gerð áætlunarinnar og dæmi um sniðmát sem vinnustöðum er frjálst að nýta eða hafa til stuðnings kjósi þeir það. Enn fremur hafa verið gerð stutt og hnitmiðuð myndbönd og spurningakönnun um efnið.
Vinnueftirlitið hvetur atvinnurekendur og starfsfólk til að eiga samtal um öryggi og vellíðan á vinnustöðum svo öll komi heil heim starfsævina á enda.