Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Ekki treysta á heppni

Vinnueftirlitið stendur nú fyrir vitundarvakningunni "Ekki treysta á heppni" sem er ætlað að minna á notkun viðeigandi fallvarna og öryggisbúnaðar en fall úr hæð er ein algengasta orsök banaslysa við vinnu hér á landi.

  • Fall á jafnsléttu er almennt algengasta orsök vinnuslysa á Íslandi. Í mannvirkjagerð er það hins vegar fall úr hæð.

  • Fall úr hæð getur valdið alvarlegum áverkum og er ein algengasta ástæða banaslysa við vinnu.

  • Á undanförnum árum hafa flest banaslys við vinnu orðið við mannvirkjagerð og flest af þeim hafa orðið vegna falls úr hæð.

Tryggið öryggið

Tuttugu og fimm prósent tilkynntra vinnuslysa verða vegna falls á jafnsléttu og tíu prósent vegna falls úr hæð. Hægt er að fyrirbyggja flest slys með forvörnum.

Mannvirkjavinnustaðir þurfa, líkt og aðrir vinnustaðir, að setja öryggi og vellíðan starfsfólks í forgang og vera með áhættumat sem tekur mið af síbreytilegum aðstæðum.

Starfsfólk þarf að fylgja öryggisreglum og gera eigið áhættumat áður en vinna hefst og ef breytingar verða á meðan á vinnu stendur. Gott er að taka fimm áður en hafist er handa við hvers kyns vinnu.

Forðist vana og ekki treysta á heppni!

Notið ávallt viðeigandi fallvarnir og öryggisbúnað því fall við vinnu getur verið dauðans alvara.

Öll heil heim

Myndband vitundarvakningar: Ekki treysta á heppni