Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum

11. nóvember 2026

Í tilefni af Degi gegn einelti 8. nóvember síðastliðinn gefur Vinnueftirlitið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.

Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustað er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og hvað vinnustaðir geta gert til að draga úr líkum á einelti.

Samhliða er gefið út nánara fræðsluefni um hvernig fyrirbyggja megi einelti á vinnustað og efla heilbrigða vinnustaðamenningu.

Meðfylgjandi gátlista er einnig gott að nota til stuðnings:

Það getur líka verið gagnlegt að kanna þekkingu sína á málefninu:

Vertu klár!

Hvað veist þú um einelti, áreitni og ofbledi á vinnustöðum?
Vertu klár – kannaðu þekkingu þína