Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum

Dagur gegn einelti er 8. nóvember. Í tilefni þess gefur Vinnueftirlitið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.

Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustað er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og hvað vinnustaðir geta gert til að draga úr líkum á slíkri hegðun.

Einelti má aldrei líðast á vinnustöðum

Einelti á vinnustað er hegðun sem getur haft neikvæð áhrif á vellíðan og öryggi starfsfólks og árangur vinnustaða.

Einelti getur birst með ýmsum hætti í vinnuumhverfinu:

  • Sýnileg hegðun: Til dæmis þegar starfsmaður fær ítrekað aðfinnslur í viðurvist annarra.

  • Hegðun sem er erfitt að koma auga á: Til dæmis síendurtekið baktal eða félagsleg útilokun.

Nánar um einelti á vinnustöðum.

Hvernig má fyrirbyggja einelti?

Skipulag, stjórnun og samskipti hafa mikil áhrif á vinnuumhverfið og geta þessir þættir dregið úr eða aukið líkur á erfiðum samskiptum.

  • Skýr hlutverk og ábyrgð: Þegar hlutverk og ábyrgð eru skýr, starfsfólk fær nauðsynlegan stuðning og endurgjöf og skýr viðmið gilda um samskipti er lagður grunnur að heilbrigðu vinnuumhverfi sem getur dregið úr líkum á erfiðum samskiptum.

  • Gott skipulag og stjórnun: Þegar stjórnun, skipulag og samskipti eru í góðu lagi dregur það úr líkum á misskilningi, óskýrri verkaskiptingu, skorti á forgangsröðun verkefna, togstreitu og erfiðum samskiptum.

  • Áhættumat og forvarnir: Með áhættumati er hægt að greina í tíma þá þætti sem kunna að hafa neikvæð áhrif á líðan starfsfólks og leggja grunn að markvissu forvarnarstarfi.

Öll á vinnustaðnum hafa hlutverki að gegna

Öll á vinnustaðnum þurfa að axla ábyrgð á eigin samskiptum.

Stjórnendur gegna lykilhlutverki í að móta heilbrigða vinnustaðamenningu. Þeir þurfa meðal annars að:

  • Skapa skýra sýn, veita stuðning og fylgja málum eftir.

  • Virkja starfsfólk í að móta og viðhalda þeirri menningu sem það vill stuðla að

  • Huga að því hvernig hvernig menningin birtist í samskiptum, hegðun og viðhorfum starfsfólks og ganga á undan með góðu fordæmi.

Starfsfólk tekur virkan þátt í að skapa og viðhalda heilbrigðri vinnustaðamenningu. Hvert og eitt okkar ber ábyrgð á eigin hegðun og mikilvægt er að sýna hvert öðru virðingu og vinsemd í daglegum samskiptum.

Heilbrigð vinnustaðamenning er besta forvörnin

Vinnustaðamenning endurspeglast í þeim gildum, venjum og viðhorfum sem ríkja í vinnuumhverfinu og móta það hvernig starfsfólk talar saman, vinnur saman og tekst á við ágreining.

Þegar vinnustaðamenning einkennist af trausti, skýrum viðmiðum um samskipti og því að tekið er á ábendingum fljótt og með eftirfylgni, skapast aðstæður til að grípa snemma inn erfið eða neikvæð samskipti sem geta stigmagnast í einelti.

Slík menning hefur einnig áhrif á það hvort starfsfólk treystir sér til að ræða erfið samskipti, leita stuðnings eða benda á það sem betur má fara.

Frá vitund til aðgerða

Vinnueftirlitið hvetur vinnustaði til að nýta nýtt fræðslumyndbandið til að taka umræðuna meðal samstarfsfólks og grípa til aðgerða þar sem er þörf.

Meðfylgjandi gátlista er einnig gott að nota til stuðnings:

Grípum snemma inn í neikvæð samskipti

Það getur líka verið gagnlegt að kanna þekkingu sína á málefninu:

Vertu klár!

Hvað veist þú um einelti, áreitni og ofbledi á vinnustöðum?
Vertu klár - kannaðu þekkingu þína

Segjum NEI við einelti.