Í dag komu út tvær skýrslur um langtímahættumat vegna hraunvár á Reykjanesskaga, en þær eru hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta heildstætt eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum. Alls eru komnar út fjórar skýrslur í verkefninu sem hófst snemma árs 2024 og á að ljúka 2027. Á þessu ári bætast við fjórar skýrslur um sprunguvá, tvær skýrslur til viðbótar um hraunavá og ein skýrsla um jarðskjálftavá. Skýrslur um gjóskufall, gasmengun og grunnvatnsmengun fylgja svo í kjölfarið á næsta ári. Að taka saman mat á eldfjallavá í einu verkefni fyrir svæði þar sem til staðar eru sjö eldstöðvakerfi, sextán sveitarfélög og fjöldi mikilvægra innviða, er umfangsmikið verkefni og í raun einstakt á heimsvísu.