Þjónusta heilsugæslustöðva
Fimmtán heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins veita samræmda þjónustu. Upplýsingar um nánara fyrirkomulag eru á síðu hverrar stöðvar.
Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins svarar bráðum erindum:
Í síma 1700
Á netspjalli Heilsuveru
Það er allaf hægt að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi en símaviðtal við lækni þarf að panta.
Á mínum síðum Heilsuveru er auðvelt að eiga rafræn samskipti við þau sem sinna þér á stöðinni.
Þú getur fengið ráðgjöf vegna bráðra erinda á netspjalli Heilsuveru og allan sólarhringinn í síma 1700.
Þú getur hitt lækni í bókuðum tíma sem þú pantar með því að hringja á stöðina.
Ef erindið þolir ekki bið getur þú haft samband í síma 1700 eða á netspjalli Heilsuveru.
Á mínum síðum Heilsuveru er auðvelt að koma skilaboðum til starfsfólks stöðvarinnar.
Einnig er hægt að panta símaviðtal við lækni.
Ung- og smábarnavernd stendur öllum börnum til boða og er ókeypis fyrir sjúkratryggða.
Foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar. Eftir það er þeim boðið að koma á heilsugæslustöðina með barnið í skoðanir.
Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi umönnun barnsins og eigin líðan.
Þegar barnið er sex vikna gamalt er boðið upp á læknisskoðun á heilsugæslustöð. Við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar.
Meðgönguvernd er upphaf heilsuverndarþjónustunnar. Verðandi foreldrar geta farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Meðgönguvernd er ókeypis fyrir sjúkratryggða. Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu.
Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi skoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 7-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
Í þjónustu fyrir fólk með langvinnan heilsuvanda er áhersla er lögð á þessa sjúkdóma:
Sykursýki af tegund 2
Ofþyngd/offitu
Langvinna lungnateppu
Hjarta- og æðasjúkdóma
Hækkaðan blóðþrýsting
Þjónustan fer eftir þörfum einstaklingsins en oft boðið upp á eitthvað af þessu:
Heilsufarsmat
Áætlun einstaklings
Eftirfylgd
Rannsóknir og skoðun
Lyf og lyfjarýni
Áhugahvetjandi samtal
Forvarnir
Þjónusta fyrir fólk með langvinnan heilsuvanda er oft í framhaldi af læknisviðtali. Einnig er hægt að bóka hana sérstaklega. Þú getur haft samband við heilsugæslustöðina þína ef þú vilt nýta þessa þjónustu.
Hreyfiseðillinn er meðferð við sjúkdómi sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft áhrif á.
Sjúkraþjálfarar gera hreyfiáætlun miðað við sjúkdóm, hreyfigetu og áhugahvöt einstaklings.
Einstaklingurinn skráir hreyfingu sína rafrænt og sjúkraþjálfari fylgist með framvindu og gangi mála, veitir aðhald og hvatingu með símtölum og skilaboðum gegnum Heilsuveru.
Lyfjum er ávísað í viðtali hjá lækni.
Hægt er að óska eftir endurnýjun fyrir sum lyf sem tekin eru að staðaldri og er ávísað af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunum næsta virka dag en geta tekið lengri tíma.
Sýklalyf, sterk verkjalyf, róandi lyf og svefnlyf eru bara endurnýjuð í viðtali hjá lækni.
Ef þú hefur spurningar eða áhyggjur af lyfjunum þínum getur lyfjafræðingur heilsugæslunnar ráðlagt þér og yfirfarið lyfin þín
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun á Heilsuveru. Þú þarft að hafa rafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Upplýsingar um símanúmer og símatíma lyfjaendurnýjunar eru á síðunni Almennar upplýsingar á hverri heilsugæslu.
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu er hægt að sækja um það á mínum síðum Heilsuveru.
Vegna lengri veikinda og annarra vottorða þarf að hafa samband við lækni.
Greiða þarf fyrir flest vottorð og verð þeirra má sjá í gjaldskrá.
Heimilislæknar gera tilvísanir til sérgreinalækna ef þarf vegna mála sem þeir hafa haft aðkomu að.
Þegar aðkomu sérgreinalækna lýkur senda þeir heimilislækni læknabréf til upplýsingar.
Hjúkrunarfræðingar eru í grunn- og framhaldsskólunum. Þeir sjá um fræðslu, skimanir og bólusetningar.
Hjúkrunarfræðingarnir ráðleggja nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólans.
Hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðinginn í skólanum með því að hafa samband við skólann.
Heilsuvernd eldra fólks miðar að því að styðja við andlega, líkamlega og félaglega heilsu svo fólk geti búið heima sem lengst.
Viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks er bókað með því að hringja í heilsugæsluna.
Hjúkrunarfræðingurinn:
Aðstoðar við að bæta og aðlagast breyttu heilsufari.
Leiðbeinir um hjálpartæki og stoðtæki.
Veitir ráð um þjónustu sem eru í boði.
Þau sem eru 70 ára og eldri eru hvött til að panta tíma hjá heimilislækni í almennt eftirlit.
Ýmsar rannsóknir og próf eru gerð á heilsugæslustöðvum.
Blóðsýni eru oftast tekin á morgnana. Venjulega þarf að bóka tíma í blóðtöku og alltaf þarf beiðni frá starfsmanni að liggja fyrir. Oft er nauðsynlegt sé að vera fastandi fyrir blóðtöku.
Þvagsýni þurfa oftast að berast fyrir klukkan 9:30. Best er að koma með fyrsta morgunþvag nema annað hafi verið tekið fram.
Hringið í 1700 til að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi allan sólarhringinn
Sérstök neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis er opin allan sólarhringinn á Landspítala.
Fyrstu sólarhringarnir eftir að brot er framið eru mjög mikilvægur tími sérstaklega varðandi lífsýnasöfnun ef ákveðið er að kæra brotið síðar.
Hægt er að leita til heilsugæslu á dagvinnutíma óháð tímalengd frá broti:
Til að fá ráðgjöf, stuðning, fræðslu og aðstoð við úrvinnslu.
Vegna sýnatöku fyrir smitsjúkdómum, kynsjúkdómum, sýkingum, þungun eða öðru slíku.
Sálfræðingar og félagsráðgjafar starfa sem hluti af þverfaglegum teymum og í náinni samvinnu við skóla og félagsþjónustu.
Sálfræðingar sinna ráðgjöf og meðferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra annars vegar og fullorðinna 18 ára og eldri hins vegar
Félagsráðgjafar aðstoða einstaklinga, pör eða fjölskyldur sem standa frammi fyrir vandamálum sem hafa áhrif á heilsu þeirra.
Þú getur haft hringt í heilsugæsluna þína til að athuga með tíma.
Það hjálpar einnig mörgum að sækja námskeið eða netmeðferð.
Heilsugæslustöðvar eru opnar virka daga á dagvinnutíma. Þar er tekið á móti fólki með bráð veikindi og eftir smærri slys.
Fyrsta skrefið er að hafa samband í síma 1700 eða á netspjallinu á Heilsuveru.
Þar leiðbeinir hjúkrunarfræðingur þér um næstu skref og veitir ráðgjöf. Ef þú þarft að koma á heilsugæslustöð færð þú tíma samdægurs eða daginn eftir.
Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að fá þjónustu á dagvinnutíma. Ef þinn heimilislæknirinn er ekki við sinnir annar læknir eða hjúkrunarfræðingur erindinu.
Ljósmóðir með sérþekkingu í getnaðarvörnum veitir ráðgjöfina og skrifar upp á lyfseðil eftir þörfum. Sé óskað eftir lykkju eða hormónastaf er hægt að bóka tíma í uppsetningu í framhaldi af ráðgjöfinni.
Hægt er að bóka tíma gegnum mínar síður á Heilsuveru. Hver tími er 45 mínútur og er greitt komugjald fyrir tímann.
Þessi þjónusta er í boði hjá Heilsubrú og nokkrum heilsugæslustöðvum en stendur öllum til boða.
