4472 leitarniðurstöður
Joðtöflur hafa verið til umræðu á samfélagsmiðlum og í fréttum bæði hér á landi og erlendis. Fram hefur komið að fólk á Íslandi sé að kaupa joðtöflur til að verjast hugsanlegri geislavirkni í tengslum við stríð í Úkraínu.
Staða barna og ungmenna á tímum COVID-19 er yfirskrift fjarmorgunverðarfundar Náum Áttum sem verður haldinn á morgun, 11. nóvember 8:30 - 10:00.
Nú þarf að huga að sólarvörnum. Með vorinu hækkar sól á lofti og eykst þá styrkur útfjólublárrar geislunar frá sólu. Svokallaður UV-stuðull segir til um styrk útfjólublárrar geislunar. Mælt er með að verja sig fyrir sólinni þegar UV stuðullinn er 3 eða hærri. Á Íslandi getur UV stuðullinn verið 3 eða hærri um það bil frá maí til september.
Úrslit liggja nú fyrir í samkeppninni Tóbaks- og rafrettulaus bekkur skólaárið 2019-2020 sem haldin er meðal tóbakslausra 7., 8. og 9. bekkja í skólum landsins. Samtals 200 bekkir um allt land tóku þátt í keppninni að þessu sinni.
Vikuna 14. – 20. júní verða tæplega 40 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi með fjórum tegundum bóluefna. Samtals fá um 18 þúsund bóluefni Pfizer, þar af fá 10 þúsund fyrri bólusetninguna en 8 þúsund seinni bólusetningu.
Á þekkingarvefnum Heilsuveru er auðvelt að finna skýrar leiðbeiningar um hvernig best er að bregðast við veikindum og leita eftir einkennum eða sjúkdómum.
Konum fæddum 1962–1966 sem ekki hafa áhættuþætti sem auka hættu á segamyndun skv. minnisblaði blóðmeinafræðinga til sóttvarnalæknis 9.4. sl. verður boðin bólusetning með Astra Zeneca bóluefni.
Í ljósi þess að illa hefur gengið að fá lækna til starfa við heilsugæsluna í Borgarnesi og framundan eru sumarleyfi sjá starfsmenn því miður ekki annað fært en að skerða þjónustuna í sumar vegna manneklu við þá aðila sem ekki eru skráðir á heilsugæslustöðina í Borgarnesi.
Þann 10. apríl s.l. var lögð fram fyrirspurn á Alþingi til fjármála- og efnahagsráðherra um ástandsskoðun húseigna.
Nýr Talnabrunnur embættis landlæknis fjallar um hreyfingu og mataræði á tímum COVID-19. Höfundar efnis eru Gígja Gunnarsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir og Jóhanna E. Torfadóttir.