Fara beint í efnið

14. júní 2021

Bólusetningar við COVID-19 í viku 24, 14. – 20. júní

Vikuna 14. – 20. júní verða tæplega 40 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi með fjórum tegundum bóluefna. Samtals fá um 18 þúsund bóluefni Pfizer, þar af fá 10 þúsund fyrri bólusetninguna en 8 þúsund seinni bólusetningu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Vikuna 14. – 20. júní verða tæplega 40 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi með fjórum tegundum bóluefna.

Samtals fá um 18 þúsund bóluefni Pfizer, þar af fá 10 þúsund fyrri bólusetninguna en 8 þúsund seinni bólusetningu.

Einnig fá um 13.500 bóluefni Janssen og 2.600 seinni bólusetningu með AstraZeneca. Auk þess fá 5.500 einstaklingar bóluefni Moderna, þar af 1.400 fyrri bólusetninguna.

Nánar um bólusetningar á covid.is, á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á vef embættis landlæknis. 

Sóttvarnalæknir