10000 leitarniðurstöður
Tryggingastofnun hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2023 sem var afhent í gær á stafrænu ráðstefnunni Við töpum öll á einsleitninni – Jafnrétti er ákvörðun.
Dagana 17.-21. júní sl. fór fram jafningjamat á starfsemi ISAC á vegum evrópsku faggildingarsamtakanna EA (European co-operation for Accreditation), en slíkt mat er grundvöllur gagnkvæmrar viðurkenningar á faggildingu og samræmismati meðal aðila EA.
Á ársfundi Orkustofnunar sem haldinn var í Hofi á Akureyri í liðinni viku voru veittar viðurkenningar opinberum stofnunum sem náð hafa ákveðnum áföngum í orkuskiptum í bílaflota sínum. Hlutfall rafbíla hjá Landi og skógi er nú um þriðjungur og því fékk stofnunin brons.
Þjónusta og ráðgjöf um heilsutengd málefni við almenning hefur verið stóraukin í símanúmerinu 1700 og á netspjalli Heilsuveru. Þjónusta vegna bráðaerinda hjá HSN Akureyri fer nú í gegnum 1700 númerið.
Út er komin á vef Embættis landlæknis framkvæmdaskýrsla rannsóknarinnar Heilsa og líðan Íslendinga 2017.
Myndmælingateymi EFLU hefur fullklárað þrívíddarmódel af Grindavík sem það vann fyrir Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Módelin, sem hægt er að sjá hér að neðan, veita haldbærar upplýsingar um ástand fasteigna og mannvirkja í Grindavík.
Heimsóknir þjóðskjalavarðar til héraðsskjalasafna eru mikilvægur liður í samstarfi skjalasafna á Íslandi og á sumarmánuðum heimsótti þjóðskjalavörður Héraðsskjalasafnið á Akureyri.
Í ljósi aðstæðna hefur öllum skilum á eignum til fasteignafélagsins Þórkötlu í Grindavík sem fara áttu fram í þessari viku verið aflýst.
Aðgerðir hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Dómsmálaráðuneytið og önnur sýslumannsembætti hafa leitt til styttri afgreiðslutíma á sviði fjölskyldumála og þinglýsinga.