10000 leitarniðurstöður
Inflúensa A var staðfest hjá 30 einstaklingum, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.
Í ljós er komið að rafræn bólusetningavottorð vegna COVID-19 bólusetninga endurreikna gildistíma út frá síðasta skammti þótt það sé örvunarskammtur sem ekki er ætlunin að ógildi grunnbólusetningu. Unnið er að lagfæringu á þessu og verður tilkynnt þegar þetta er komið í lag svo þeir sem á þurfa að halda geti sótt sér nýtt skírteini.
Aldrei hafa fleiri tekið við viðurkenningu jafnréttisvogarinnar en í ár. Alls hlutu 130 aðilar viðurkenninguna að þessu sinni og var Land og skógur þar á meðal. Gróðursett er eitt tré fyrir hvern viðurkenningarhafa í Jafnréttislund FKA í samvinnu við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Þann 27. september undirrituðu Hljóðbókasafn Íslands og Myndstef tvo samninga vegna birtinga mynda og bókakápa í höfundarrétti á vef og í streymisveitu.
Færri greindust með COVID-19, inflúensu og RSV í liðinni viku samanborið við vikuna á undan. Innlagnir á sjúkrahús voru svipaðar á milli vikna. Klínískar greiningar öndunarfærasýkinga benda til hærri tíðni en í venjulegu ári.
Borist hafa um 326 tilkynningar um tjón í Grindavík, þar af hafa um 90 tilkynningar borist á síðustu sjö dögum. Búið er að skoða 251 tjón og er reiknað með því að um 14 skoðanir fari fram á föstudag og mánudag.
Geislavarnir hafa gefið út leiðbeiningar um notkun geislahlífa á sjúklinga, í samstarfi við sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir og fagfélög.
NTÍ hóf þátttöku í grænum skrefum í ríkisrekstri í byrjun september, en græn skref er verkefni á vegum Umhverfisstofnunar fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.