Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur, sérhæfir sig í málefnum um geðheilbrigði aldraðra hjá HSN. Hún segir vitundarvakningar þörf um félagslega einangrun aldraðra, sem fer vaxandi í hinum vestræna heimi og sé alvarlegt lýðheilsumál á pari við reykingar og ofneyslu áfengis.