Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. maí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Enn verk að vinna hjá lögreglu

Þótt formlegri dagskrá leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu sé lokið er enn verk að vinna hjá lögreglu.

Akstur sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli hefur annars gengið vel. Og það sama má segja um umferðina á höfuðborgarsvæðinu almennt.

Minnum samt vegfarendur á að fara varlega og sýna líka bæði þolinmæði og tillitssemi. Þegar það er gert gengur öllum betur að komast leiðar sinnar.