Í dag, 25. nóvember, er baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og markar dagurinn jafnframt árlega upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið er alþjóðlegt og miðar að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot.