Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) hefur borist samtals 432 tilkynningar um tjón vegna náttúruhamfaranna í Grindavík, þar af bárust 8 tilkynningar í síðustu viku.
Búið er að skoða 266 húseignir og 15 innbú en eftir standa óskoðuð 122 tjón á húseignum og 29 tjón á innbúum/lausafé sem óljóst er hvenær hægt verður að skoða.