10000 leitarniðurstöður
Yfirlýsing aðildarríkja ESB, Bandaríkjanna, Kanada, Japan og Bretlands lýsir stuðningi ríkjanna við viðleitni Alþjóðaflugmálastofnunarinnar til að takast á við áskoranir og tækifæri í flugstarfsemi í efri lögum loftrýmisins.
Gagnasíður Fiskistofu eru í stöðugri framþróun. Búið er að uppfæra gagnasíðuna þannig að slóð vafrans inniheldur skýrsluna og allar síur
Lög um rafrettur og áfyllingar taka gildi í dag, 1. mars. Í lögunum er meðal annars kveðið á um innflutning, markaðssetningu, hvar má nota rafrettur og öryggi þessa varnings.
Í liðinni viku voru gróðursett fjögur hundruð birkitré á Tumastöðum í Fljótshlíð sem ætlað er að gefa fræ til framleiðslu á úrvalsbirki. Yrkið kallast 'Embla' og er árangur af kynbótastarfi sem miðað hefur verið að því að fá beinvaxið íslenskt birki með góðan vaxtarþrótt.
Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 73 einstaklingum.
Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 46 einstaklingum.
Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis er fjallað um fæðingar og meðgöngutengda sjúkdóma árið 2020.
Hin árlega samkeppni Tóbakslaus bekkur hefur fengið nýja yfirskrift og heitir nú Tóbaks- og rafrettulaus bekkur. Samkeppnin er nú að hefjast hér á landi í tuttugasta og fyrsta sinn. Skráning er þegar hafin og þarf að skrá bekki í síðasta lagi 16. nóvember 2019 á vefsíðunni Tóbaks- og rafrettulaus bekkur.
Sóttvarnalæknir ræður nú frá ónauðsynlegum ferðum til Kína, Suður-Kóreu, Írans, Ítalíu og skíðasvæðisins Ischgl í Austurríki. Skíðasvæðið Ischgl í Austurríki hefur þar með bæst í hóp skilgreindra áhættusvæða vegna COVID-19 veirunnar.
Unnið er að því að skipuleggja bólusetningar 5-11 ára barna (árganga 2010-2016) í byrjun árs 2022. Ekki er komið á hreint hvernig verklag verður á landsvísu en stefnt er að því að bjóða forsjáraðilum barna í þessum árgöngum að taka afstöðu varðandi bólusetninguna fyrir sín börn í viku 1 og hefja framkvæmd bólusetninga í viku 2 2022.