10000 leitarniðurstöður
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út.
Fiskistofa hefur lokið úrvinnslu á tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í janúar.
Í ljósi ábendinga sem borist höfðu embætti landlæknis frá notendum heilbrigðisþjónustu var gerð hlutaúttekt á aðgengi að göngudeildarþjónustu (e. outpatient care) vegna gigtarsjúkdóma fyrri hluta árs 2019. Skoðað var aðgengi að og notkun á göngudeildarþjónustu á heilbrigðisstofnunum og á starfsstofum sjálfstætt starfandi gigtarlækna.
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður lækna innan þeirra greina lækninga þar sem viðurkennt sérnám fer fram á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 3. júní 2024 en þriðjudaginn 4. júní er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Göngudeild Selfossi
Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 852 fasteignum í Grindavík eða 93% þeirra sem sótt hafa um.
Matvælaráðherra hefur skipað Elínu Björgu Ragnarsdóttur sem fiskistofustjóra frá 1. júní.
Á strandveiðum er heimilt að stunda strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar í maí, júní, júlí og ágúst, á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Tilfellum af staðfestri inflúensu fer fækkandi en greiningar af týpu B eru í miklum meirihluta. Klínískum greiningum á inflúensulíkum einkennum fjölgaði lítillega á milli vikna. COVID-19 greiningum fer fjölgandi miðað við síðustu tvær vikur og var yfir fjórðungur sýna jákvæður í undangenginni viku.
Gagnasöfnun lýkur eftir tvo daga! 363 börn skráð í rannsóknina en „væri frábært að fá nokkra tugi til viðbótar“ á endasprettinum. „Algengi svefnvandamála barna.“ er viðamikil rannsókn sem Sjúkrahúsið á Akureyri leiðir. Nú er vika þar til gagnasöfnun lýkur en í dag eru 363 börn skráð í rannsóknina. Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að kæfisvefn meðal barna sé algengara vandamál en fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna en alls hafa 75 þátttakendur með meðal- eða alvarlegan kæfisvefn mætt í skoðun og eftirfylgni hjá háls-, nef- og eyrnalækni, barnalækni og tannréttingasérfræðingi. Í þessari viku fara síðustu kynningarfundirnir fram. Skráning í rannsóknina og frekari upplýsingar fást með því að senda línu á svefn@sak.is. Öll börn fædd 2014-2018 sem búa á Akureyri og í nærsveitum geta tekið þátt.