Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn - sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna. Verklagið tekur mið af ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 (hér eftir lög um útlendinga), reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og barnaverndarlaga nr. 80/2002 (hér eftir barnaverndarlög), reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 og lög nr. 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn). Verklagið er aðgerð í framkvæmdaráætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 og nær til fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    A. hluti - barn sem kemur eitt á ferð

    1. Þegar endanleg niðurstaða máls liggur fyrir um að veita barni dvalarleyfi skal löglærður talsmaður birta niðurstöðuna fyrir barninu að viðstöddum starfsmanni barnaverndarþjónustu. Tryggja skal að barn skilji efni ákvörðunar og réttaráhrif hennar og mikilvægt er að upplýsa barn og barnaverndarþjónustu um tímalengd dvalarleyfisins og hvenær skal endurnýja leyfið. Þá þarf að upplýsa barn og barnaverndarþjónustu um mögulegan rétt barns til fjölskyldusameiningar.

    2. Eftir birtingu ákvörðunar lýkur hlutverki löglærðs talsmanns barns sem skipaður var af Útlendingastofnun.

    3. Ef niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli barns er sú að barnið fær rétt til dvalar á Íslandi sendir Barna- og fjölskyldustofa tölvupóst á barnaverndarþjónustu og óskar eftir afstöðu til skipunar forsjá barns.

    4. Þegar liggur fyrir hvaða barnaverndarþjónusta mun fara með forsjá barns sendir Barna- og fjölskyldustofa skipunarbréf á viðkomandi þjónustu og upplýsir Útlendingastofnun um skipunina og tilkynnir um lok hagsmunagæslu í máli barns.

    5. Útlendingastofnun boðar barn og barnaverndarþjónustu í myndatöku fyrir dvalarleyfiskort og undirbýr skráningarblað barnsins til Þjóðskrár. Farið er yfir leiðbeiningar sem máli kunna að skipta eins og reglur um ferðaskilríki og afhendingu vegabréfs.

    6. Útlendingastofnun sendir skráningarblað vegna beiðni um kennitölu til Þjóðskrár eftir að hafa fengið upplýsingar frá barnaverndarþjónustu um hvar barn er vistað.

    7. Þegar skráningu er lokið í Þjóðskrá og dvalarleyfiskort er tilbúið til afhendingar fær barnaverndarþjónusta tilkynningu um það.