Verklag um fylgdarlaus börn - sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd
Þjónustuaðili:
Sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna. Verklagið tekur mið af ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 (hér eftir lög um útlendinga), reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og barnaverndarlaga nr. 80/2002 (hér eftir barnaverndarlög), reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 og lög nr. 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn). Verklagið er aðgerð í framkvæmdaráætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 og nær til fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Lögregla tilkynnir fylgdarlaust barn til barnaverndarþjónustu þess sveitarfélags þar sem barnið er statt og óskar eftir aðkomu þjónustunnar.
Lögregla framkvæmir upplýsingatöku vegna umsóknar barns um alþjóðlega vernd að viðstöddum starfsmanni barnaverndarþjónustu. Lögregla styðst m.a. við staðlað eyðublað við upplýsingaöflun. Lögregla tekur ljósmynd af barninu, haldleggur ferðaskilríki barnsins og tekur afrit af þeim. Ef vafi leikur á um lögmæti skilríkja, leggur skilríkjasérfræðingur lögreglu mat á þau og upplýsir Útlendingastofnun og barnaverndarþjónustu um niðurstöður matsins.
Lögregla skoðar öll gögn sem barn kann að hafa meðferðis. Upplýsingaöflun á þessu stigi er mikilvæg fyrir bæði lögreglu og barnaverndarþjónustu. Lögregla veitir starfsmanni barnaverndarþjónustu allar þær upplýsingar og gögn sem kunna að hafa þýðingu í máli barns og sendir skriflega tilkynningu til þeirra barnaverndar-þjónustu sem ber ábyrgð á málinu.
Lögregla og barnaverndarþjónusta veita því sérstaka athygli hvort barn kunni að vera þolandi mansals eða að koma þess til landsins tengist annarri refsiverðri háttsemi fullorðinna einstaklinga, t.d. smygli á fólki.
Lögregla færir upplýsingar um umsókn barns í Löke og hakar við að barn sé fylgdarlaust.
Barnaverndarþjónusta metur hagsmuni barns, öryggi þess og líðan og tekur yfir umsjá þess. Þegar viðtali barns við lögreglu er lokið fer starfsmaður barnaverndarþjónustu með barnið í viðeigandi úrræði. Barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar starfrækir búsetuúrræði fyrir fylgdarlaus börn sem stendur öðrum barnaverndarþjónustum til boða sé rými til staðar.
Barnaverndarþjónusta skráir barn í málakerfi þjónustunnar þegar tilkynning berst frá lögreglu og opnar barnaverndar- og hagsmunagæslumál.
Lögregla tryggir að Útlendingastofnun berist umsókn fylgdarlauss barns um vernd í gegnum Löke. Lögregla veitir stofnunni einnig upplýsingar um það hvaða barnaverndarþjónusta fari með mál barns.