Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Niðurstöður lesskilningsprófs
Niðurstöður lesskilningsprófsins samanstanda af einstaklings- og hópaniðurstöðum og eru settar fram í texta, töflum og á myndrænu formi, bæði fyrir prófið í heild og hvern inntaksflokk.
Staða hóps á lesskilningsprófi er einnig sett fram á mynd þar sem meðaltal hans er gefið upp á mælitölu. Meðaltal hóps er táknað með svörtum punkti og landsmeðaltal er sýnt með brotalínu. Í dæminu á myndinni er meðaltal hópsins á mælitölunni 10, sem er við landsmeðaltal. Minni punktarnir tákna niðurstöðu einstakra nemenda. Með því að færa músarbendilinn yfir punkt og smella á hann opnast einstaklingsniðurstöður viðkomandi nemanda.
Þrátt fyrir að frammistaða hópsins sé á landsmeðaltali þarf að huga sérstaklega að nemendum sem fá mælitölurnar 5-7. Í dæminu á myndinni eru fimm nemendur á því mælitölubili. Einnig þarf að fylgjast vel með nemendum sem fá mælitölurnar 8 og 9 þar sem þeir eru í neðri mörkum meðaltals og enn kann að vanta nokkuð upp á að lesskilningur þeirra styðji þá í námi. Alltaf skal stefnt að því að nemendur nái upp að meðaltali eða hærra þar sem góður lesskilningur er mikilvæg forsenda fyrir samfélagsþátttöku og árangri í námi.




