Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Niðurstöður lesskilningsprófs
Niðurstöður lesskilningsprófsins samanstanda af einstaklings- og hópaniðurstöðum og eru settar fram í texta, töflum og á myndrænu formi, bæði fyrir prófið í heild og hvern inntaksflokk.
Niðurstöður nemanda eru birtar á tvo til þrjá inntaksflokka en flokkarnir eru tveir í prófútgáfum fyrir 4.-7. bekk og þrír fyrir 8.-10. bekk. Flokkarnir eru eins og fyrr segir í handbókinni að staðsetja og endurheimta, að álykta og túlka og að ígrunda og meta. Undir hverjum inntaksflokki er stutt lýsing til skýringar. Til hliðar við lýsinguna er kvarði og punktur með öryggisbili sem sýnir frammistöðu nemandans á hverjum inntaksflokki.
Sett er fram þrenns konar lýsing eða flokkun á frammistöðu nemenda innan inntaksflokkanna:
Ræður vel við: Prófatriði sem 75% eða hærri líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.
Á mörkum að ráða við: Prófatriði sem 50-74% líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.
Ræður illa við: Prófatriði sem 33-49% líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.
Með því að opna hvern flokk birtast atriðalýsingar sem endurspegla hvers konar hæfni er metin á lesskilningsprófinu og að hvaða marki nemandinn hefur náð tökum á henni ef hann læsi texta af sambærilegri þyngd.




