Fara beint í efnið

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. ágúst 2024 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Notkunarflokkaskráningar

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar skráningu ökutækja í notkunarflokk í tengslum við opinberar skoðanir þeirra eða nýskráningar (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    • Umboð (ökutækja) með fulltrúa B

    Efni kaflans

    Skilgreining notkunarflokkana

    Um eftirfarandi notkunarflokka í ökutækjaskrá er að ræða.

    Notkunarflokkur "Húsbifreið"

    Húsbifreið er fólksbifreið sem búin er sérstöku íbúðarrými. Íbúðarými (e. living accommodation space) sem útbúið er sætum og borði, svefnaðstöðu sem má vera gerð úr sætum, eldunaraðstöðu og geymsluaðstöðu. Þessi búnaður á að vera varanlega festur í íbúðarrýminu. Þó má útbúa borðið þannig að það sé auðveldlega hægt að fjarlægja það.

    • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um gerð og búnað ökutækja og sérstök regla tekur til hans í reglugerð um skoðun ökutækja. Tryggingarfélög hafa líka nýtt sér notkunarflokkinn til að bjóða önnur kjör á tryggingum

    • Skráningarheimild/skylda: Það er heimilt (ekki skylt) að skrá bifreið í þennan notkunarflokk uppfylli hún kröfurnar til notkunarflokksins.

    • Fyrir ökutækisflokka: Fólksbifreið (fyrir 8 farþega eða færri).

    • Skoðunarregla: Skoðunarreglu ökutækisflokksins er fylgt að öðru leyti en því að skoðunarmánuður verður 5.

    Skoðunarstofa sér um að tilkynna ökutæki í notkunarflokkinn á US.111 samhliða breytingaskoðun. Bifreið sem skráð í þennan notkunarflokk má breyta til baka í almenna notkun standist hún breytingaskoðun þar að lútandi.

    Kröfur til ökutækjanna

    Kröfur til húsbifreiða

    Megináherslur við hönnun húsbifreiða er að geta búið í bílnum fremur en á akstur hans, segja má að húsbifreiðir séu "hús á hjólum". Af því leiðir að hvaða bifreið sem er verður ekki breytt í húsbifreið.

    Íbúðarrými

    Svæðið getur verið hluti af innrými ökutækisins (innangengt milli íbúðarrýmis og ökumannsrýmis) eða sérstakt svæði án möguleika á að færa sig yfir í ökumannsrými (nema fara út úr ökutækinu).

    Til samræmis við megináherslur um hönnun húsbifreiða má teljast eðlilegt að lofthæð í íbúðarrými sé nægileg til að fullorðið fólk geti athafnað sig þar án þess að bogra. Einnig að hægt sé að ganga beint inn í íbúðarrýmið utanfrá.

    Sæti og matborð

    Í íbúðarrýminu skal vera matborð fyrir íbúa bílsins sem þeir geta setið við og neytt matar. Heimilt er að fella borðið niður á meðan það er ekki í notkun sem slíkt, eða jafnvel fjarlægja alveg með auðveldum hætti. Fjöldi sæta og stærð borðs skal að jafnaði rúma þann fjölda íbúa sem svefnaðstaðan rúmar.

    Sæti skulu vera traust og fest á viðurkenndan hátt. Á þeim mega ekki vera hvassar brúnir eða útstæðir hlutir sem geta valdið meiðslum við snögga hemlun eða árekstur. Sæti farþega skulu þannig gerð að þau séu þægileg í notkun.

    Öryggisbelti skulu vera í öllum sætum frá 01.10.2005 (þriggjafestu rúllubelti í öllum framvísandi sætum og a.m.k tveggjafestu belti í afturvísandi sætum). Hliðarvísandi sæti eru óheimil. Sjá reglur um öryggisbelti í eldri bifreiðum í sérstöku skjali um öryggisbelti og púða.

    Svefnaðstaða

    Í íbúðarrýminu skal vera svefnaðstaða fyrir a.m.k. einn einstakling. Aðstöðuna má t.d. útbúa úr sætum bílsins og borði. Hana þarf að vera hægt að setja upp með einföldum hætti og án notkunar verkfæra. Eftir að rúm hefur verið sett upp á að vera hægt að loka bifreiðinni (dyrum).

    Miða skal við að 70 cm rúmbreidd sé lágmark fyrir sérhvern einstakling og rúm nái að minnsta kosti 170 cm lengd.

    Eldunaraðstaða

    Í íbúðarrými skal vera eldunaraðstaða sem samanstendur af vaski og eldavél. Þessi búnaður á að vera fastur í bifreiðinni og hluti af innréttingu hennar. Það á að vera hægt að nota eldunarbúnað á meðan íbúar eru inni í bílnum og með dyr lokaðar (s.s. í slæmu veðri).

    • Vaskur með krana og rennandi vatni. Auðvelt á að vera að fara með ferskvatnsílát og fylla á hann og taka burt frárennslisílát og tæma á viðeigandi hátt fyrir utan bílinn.

    • Eldavél sem föst er við innréttingu bíls, s.s. gas- eða rafmagnshellur. Gas- og raflagnir að eldavél þurfa að vera fastar. Ganga þarf frá gaskút með viðeigandi hætti, sjá leiðbeiningar í sérstöku skjali.

    Heimilt er að loka eldunarbúnað af á meðan hann er ekki í notkun, jafnvel taka hann í sundur að einhverju leyti án notkunar verkfæra (en ekki fjarlægja hann í heilu lagi).

    Geymsluaðstaða

    Geymslur þurfa að vera fyrir m.a. farangur og eldhúsáhöld. Horft er til þess að geymslur séu formlegir geymslustaðir fyrir þessa hluti. Í íbúðarrými geta þetta verið lokaðir skápar, kistur eða skúffur en geta líka verið sérstakar hillur (opnar) uppi við loft. Að auki geta verið geymslur sem aðgengilegar eru utanfrá (eða bæði utanfrá og innanfrá) fyrir stærri hluti, t.d. útilegubúnað og annan farangur.

    Slökkvitæki

    Húsbifreið á að vera búin slökkvitæki sem samsvarar 2 kg slökkvimætti dufts og viðurkennt fyrir A, B og C brunaflokka (sjá nánar í sérstöku skjali um slökkvitæki og sjúkrakassa).

    Gas, gasbúnaður og gaslagnir

    Sjá leiðbeiningar í sérstöku skjali um gashylki, gaslagnir og gastæki.

    Skráningarmerki

    Ekki er krafa um sérstök skráningarmerki fyrir notkunarflokkinn.

    Lög og reglur

    Frekari upplýsingar er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

    • Umferðarlög nr. 77/2019.

    • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.

    • Reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.

    • Reglugerð ESB um viðurkenningar og eftirlit á gerð og búnaði ökutækja nr. 2018/858/ESB.