Fara beint í efnið

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Uppsetning tækja eftir stýrikerfum

    Leiðbeiningar

    • Dreifa þarf Safe Exam Browser (SEB) á tæki með þeim aðferðum sem nýttar eru í skólanum við uppsetningu á hugbúnaði (Apple School Manager, MDM eða handvirkt).

    • Prófa virkni á uppsetningu.

    Prófun á virkni í iPad

    SEB er eingöngu vafri. Hugbúnaðurinn sjálfur inniheldur ekki próf heldur er hann tenging við prófin og kemur í veg fyrir aðgang að öðrum forritum eða vefsíðum á meðan á próftöku stendur. 

    Hægt er að prófa uppsetningu á SEB í iPad með því að skanna QR kóðann sem þú finnur hér fyrir neðan. Ef þú kemst inn í prófaumhverfið er uppsetningin rétt.