Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils
Þjónustuaðili:
Nemendur með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn, sem hafa verið skemur en tvö ár á Íslandi eða eru vanir að notast við þýðingarforrit í stærðfræðinámi sínu, mega nota slíkt forrit við úrlausn stærðfræðiprófsins. Þýðingarforritið þarf að vera í læstu viðmóti í öðru tæki svo aðgengi að öðrum forritum sé ekki til staðar.
Það er nokkuð misjafnt hvaða þýðingarforrit nemendur eru vanir að nota en þetta þekkja tæknitengiliðir og eru því best til þess fallnir að aðstoða nemendur og tryggja að nemendur hafi ekki aðgang að öðrum forritum á meðan á próftöku stendur. Ekki skal nota gervigreind til þýðinga.
