Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils
Þjónustuaðili:
Chromebook tölvur verða að vera stilltar í „Kiosk“ ham í gegnum Google Admin Console. Þetta tryggir að nemendur komist ekki í annað efni.
Skráðu þig inn á admin.google.com.
Farðu í „Devices > Chrome > Apps & Extensions > Kiosks“.
Veldu rétt “Organizational Unit” vinstra megin (þar sem tækin sem á að nota eru staðsett).
Smelltu á plúsinn (+) og veldu „Add by URL“.
Settu inn slóðina: https://mms.prod.gcp-eu.taocloud.org/login/ og smelltu á „Save“.
Samþykktu skilmála ef beðið er um það.
MIKILVÆGT: Eftir að þessar stillingar eru vistaðar þarf að endurræsa Chromebook tækin til að „Apps“ valmyndin birtist á innskráningarskjánum. Gerið ráð fyrir að það taki allt að 15-30 mínútur fyrir stillingarnar að dreifast á öll tæki.
Próf er aðeins hægt að leggja fram í Kiosk umhverfi á Chromebooks og eingöngu er hægt að komast í Kiosk umhverfið ef menntunarleyfi (education license) hefur verið keypt fyrir tölvuna.
Ath. ítarlegri leiðbeiningar er að finna hér fyrir Chromebook uppsetningu.
