Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils
Þjónustuaðili:
Setja þarf upp Safe Exam Browser (SEB) á öllum tölvum. Hægt er að gera það handvirkt á hverju tæki eða dreifa forritinu miðlægt.
Leið 1: Handvirk uppsetning (fyrir stök tæki)
Sækja: Farið á https://safeexambrowser.org/download_en.html.
Velja: Veljið nýjustu útgáfu fyrir Windows og keyrið uppsetninguna.
Staðfesta: Farðu á prof.mms.is og smelltu á „Hefja próf“ og þá opnast SEB vafrinn.
Leið 2: Miðlæg dreifing (fyrir kerfisstjóra)
Mælt er með að nota MSI útgáfu af SEB fyrir dreifingu í gegnum Intune eða SCCM.
Athugið: Ekki þarf að dreifa sérstakri stillingaskrá (.seb file) fyrir fram. Stillingarnar sækir vafrinn sjálfkrafa þegar nemandi smellir á próftökuhlekkinn.
Prófun (nauðsynlegt að framkvæma á öllum tölvum)
Til að staðfesta að uppsetningin virki rétt og að tölvan sé tilbúin fyrir próf:
Farðu á prof.mms.is og smelltu á „Hefja próf“.
Við það á SEB að opnast sjálfkrafa og læsa tölvunni.
Ef beðið er um lykilorð til að hætta í forritinu („Quit Password“) er það 1234
