Fara beint í efnið

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Prófdagurinn: Innskráning í próf og prófi lokað

    Opnunartími prófa: Opið er fyrir innskráningu í próf milli kl. 08:00 og 14:30. Eftir kl. 14:30 er lokað fyrir nýjar innskráningar. Nemendur sem hefja próftöku fyrir þann tíma geta haldið áfram úrlausn prófs þar til kerfið lokar sjálfkrafa kl. 16:00.

    Innskráning

    Aðferðin við innskráningu er ólík eftir því hvort próf er tekið á Chromebook eða tæki með Safe Exam Browser (PC/iPad).

    • Þegar nemandi hefur skilað prófi (ýtt á „Ljúka prófi“) þarf að loka vafranum til að fara úr læstu umhverfi.

    • Windows/iPad: Smellið á „kveikja/slökkva“ hnappinn neðst í hægra horni SEB og veljið „Quit“. Lykilorð er 1234

    • Chromebook: Smellið á „Sign out“ eða slökkvið alveg á tölvunni.