Fara beint í efnið

Að jafnaði má sækja um endurgreiðslu á tveimur ferðum eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu á hverju 12 mánaða tímabili vegna ferða sem farnar eru fyrir 31.12.2023 en þrjár ferðir á hverju almanaksári vegna ferða frá 01.01.2024. Frá 01.07.2024 nær rétturinn til fjögurra ferða á hverju almanaksári.

12 mánaða tímabilið (vegna ferða sem farnar eru fyrir 31.12.2023) hefst við fyrstu greiddu ferð sem samþykkt hefur verið af Sjúkratryggingum. Þegar að 12 mánaða tímabili eftir fyrstu greiddu ferð lýkur, markar fyrsta ferð sem samþykkt er eftir það upphaf nýs 12 mánaða tímabils.

Forsendur fyrir greiðslu eru að:

  • Ferðalag sé yfir 20 km

  • Sambærileg þjónusta sé ekki í boði í heimabyggð

Greiða má fyrir ítrekaðar ferðir ef um er að ræða ákveðna alvarlega sjúkdóma sem eru nánar skilgreindir í reglugerð. Sækja má um í tilfellum eftirfarandi sjúkdóma:

  • Illkynja sjúkdóma

  • Nýrnabilunar

  • Alvarlegra hjartasjúkdóma

  • Alvarlegra sjúkdóma barna

  • Alvarlegra geðsjúkdóma

  • Alvarlegra vandamála í meðgöngu

  • Tæknifrjóvgunarmeðferðar sem Sjúkratryggingar taka þátt í

  • Tannlækninga vegna mjög alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma

  • Fyrirbyggjandi meðferðar sem ætlað er að koma í veg fyrir illkynja sjúkdóma, hjá einstaklingum sem hafa auknar líkur á slíkum sjúkdómum vegna erfðaþátta.

  • Einnig er heimilt að sækja um fyrir heimferð eftir bráðaflutning.

Umsóknarferli - Gildir fyrir ferðir sem eru farnar 30.06.2024 og fyrr

Til að fá ferðakostnað endurgreiddan þarf:

  1. Læknir eða ljósmóðir, ef við á, sækja um endurgreiðslu ferðakostnaðar

    • Læknir eða ljósmóðir fyllir út eyðublaðið Staðfesting á nauðsynlegri ferð sjúklings utan heimahéraðs eða Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands eftir því hvað við á

  2. Umsækjandi heldur utan um öll gögn:

    • Eyðublaðinu sem læknir eða ljósmóðir hefur fyllt út

    • Farseðlar vegna flugs, ferju, áætlunarbíls eða almenningssamgangna

    • Greiðslukvittanir vegna leigubíls (vegna blóðskilunarmeðferðar allt að 60 kílómetra) og vegtolla

    • Greiðslukvittanir vegna eldsneytiskaupa í ferðinni þegar ferðast er með einkabíl.

    • Staðfestingu á komu til læknis eða afrit af reikningi, ef Sjúkratryggingum hafa ekki borist rafrænar upplýsingar um komu/innlögn frá meðferðaraðila.

Umsækjandi sendir öll gögn til umboðs sýslumanns í sinni heimabyggð, umboð áframsenda til Sjúkratrygginga ef þörf er á. Íbúar höfuðborgarsvæðisins skila gögnum beint til Sjúkratrygginga.

Einnig er hægt að skila inn gögnum rafrænt í gegnum Gagnaskil einstaklinga.

Fjórar ferðir eða færri á almanaksári

Vegna ferða sem farnar eru eftir 01.07.2024 er ekki er þörf á vottorði læknis eða ljósmóður.

Umsækjandi skilar farseðli vegna flugs, ferju, áætlunarbíls eða almenningssamgangna eða greiðslukvittun vegna eldsneytiskaupa. Gögnum er skilað til umboðs Sjúkratrygginga hjá sýslumanni í sinni heimabyggð eða rafrænt í gegnum Gagnaskil einstaklinga.

Ef um er að ræða komu á heilbrigðisstofnun eða sjúkrahús þarf einnig að skila staðfestingu á komu (til dæmis komureikningur eða yfirlit frá heilbrigðisstofnuninni).

Ítrekaðar ferðir vegna alvarlegra sjúkdóma

  1. Læknir eða ljósmóðir sækja um endurgreiðslu ferðakostnaðar á eyðublaðinu Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands

  2. Umsækjandi heldur utan um öll gögn:

    • Eyðublaðinu sem læknir eða ljósmóðir hefur fyllt út

    • Farseðlar vegna flugs, ferju, áætlunarbíls eða almenningssamgangna

    • Greiðslukvittanir vegna leigubíls (vegna blóðskilunarmeðferðar allt að 60 kílómetra) og vegtolla

    • Greiðslukvittanir vegna eldsneytiskaupa í ferðinni þegar ferðast er með einkabíl.

    • Staðfestingu á komu til læknis eða afrit af reikningi, ef Sjúkratryggingum hafa ekki borist rafrænar upplýsingar um komu/innlögn frá meðferðaraðila.

Upphæðir

Að jafnaði er endurgreitt fyrir hverja ferð, miðað við heildarkostnað umsækjanda og fylgdarmanns:

  • 2/3 af fargjaldi með flugi, ferju eða áætlunarbíl. Ef ferðast er með einkabíl er sá kostnaður reiknaður út frá vegalengd og kílómetragjaldi.

  • Kostnaðarhluti umsækjanda (1/3 hluti fargjalds) fer þó aldrei yfir 1.500 kr. í hverri ferð fram og til baka.

  • Kostnaðarhluti umsækjanda lækkar í 500 kr. fyrir hverja ferð ef kostnaður hans fer yfir 10.000 kr. á síðustu 12 mánuðum eða á almanaksári frá 01.01.2024.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar