Fara beint í efnið

Að jafnaði má greiða fyrir tvær ferðir á hverju ári fyrir foreldri eða aðstandendur einstaklinga að sækja fræðslunámskeið eða nauðsynlega fundi sem eru viðurkenndir af Sjúkratryggingum. Forsenda fyrir greiðslu er að sjúklingurinn hafi alvarlega fötlun eða langvinnan og alvarlegan sjúkdóm.

Umsóknarferli

Til að fá ferðakostnað endurgreiddan þarf:

  1. Læknir eða ljósmóðir, ef við á, að sækja um endurgreiðslu ferðakostnaðar
    - Læknir eða ljósmóðir fyllir út eyðublaðið Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands

  2. Umsækjandi heldur utan um öll gögn:
    - Eyðublaðinu sem læknir eða ljósmóðir hefur fyllt út
    - Greiðslukvittanir vegna flugs, ferju, áætlunarbíls, vegtolla eða almenningssamgangna
    - Greiðslukvittanir vegna eldsneytiskaupa í ferðinni þegar ferðast er með einkabíl
    - Staðfestingu á komu á námskeið eða fundi

  3. Umsækjandi sendir öll gögn til umboðs sýslumanns í sinni heimabyggð, umboð áframsenda til Sjúkratrygginga ef þörf er á.

Einnig er hægt að skila inn gögnum rafrænt í gegnum Réttindagátt.

Upphæðir

Að jafnaði er endurgreitt fyrir hverja ferð:

  • 2/3 af fargjaldi með flugi, ferju eða áætlunarbíl. Ef ferðast er með einkabíl er sá kostnaður reiknaður út frá vegalengd og kílómetragjaldi.

  • Kostnaðarhluti umsækjanda (1/3 hluti fargjalds) fer þó aldrei yfir 1.500 kr. í hverri ferð fram og til baka.

  • Kostnaðarhluti umsækjanda lækkar í 500 kr. fyrir hverja ferð ef kostnaður hans fer yfir 10.000 kr. á síðustu 12 mánuðum eða á almanaksári frá 01.01.2024.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar