Fara beint í efnið

Sjúkratryggingar við flutning til Íslands

Erlendir starfsmenn á Íslandi

Einstaklingar sem flytja til Íslands bera ábyrgð á að tilkynna flutninginn til Sjúkratrygginga. Fylla þarf út umsókn um skráningu í tryggingarskrá og skila inn til Sjúkratrygginga ef flutningur er innan EES landa. Almennt verða einstaklingar sjúkratryggðir sex mánuðum eftir að þeir hafa skráð búsetu sína hér á landi samkvæmt Þjóðskrá.

Einstaklingar sem flytja frá EES löndum, Bretlandi eða Sviss geta flutt með sér tryggingaréttindi ef að þeir hafa verið tryggðir í fyrra búsetulandi. Þegar umsókn um skráningu í tryggingarskrá er skilað inn og einstaklingar tilgreina að þeir hafi verið tryggðir í fyrra EES búsetulandi hafa Sjúkratryggingar samband við tryggingarstofnun einstaklinga í fyrra búsetulandi. Þegar svar berst frá tryggingarstofnun í fyrra búsetulandi um tryggingarréttindi einstaklinga geta Sjúkratryggingar eftir atvikum sjúkratryggt einstaklinga.

Útsendir starfsmenn til Íslands

Ríkisborgarar EES lands, Bretlands eða Sviss sem sendir eru til starfa tímabundið á Íslandi af vinnuveitanda sínum eða eru sjálfstætt starfandi geta verið áfram tryggðir í almannatryggingum landsins sem komið er frá. Skila þarf inn svokölluðu S1 vottorði til Sjúkratrygginga frá tryggingalandi sínu til að fá sjúkratryggingu á Íslandi. Grundvöllur útgáfu S1 vottorðs er A1 vottorð sem staðfestir að starfsmaður falli undir almannatryggingalöggjöf útgáfulandsins.

S1 vottorð er staðfesting á að einstaklingur er sjúkratryggður í útgáfulandinu og jafnframt beiðni um að einstaklingur verði sjúkratryggður í viðtökulandinu á kostnað útgáfulands.

S1 vottorðið er skráð inní tryggingaskrá á Íslandi og kemur einstaklingur því upp sem sjúkratryggður í kerfum hjá heilbrigðsveitendum á Íslandi. Einstaklingur fær því sama rétt og aðrir sjúkratryggðir einstaklingar á Íslandi á meðan S1 vottorð er í gildi.

Hafi einstaklingur ekki fengið útgefið S1 vottorð ásamt A1 vottorði geta Sjúkratryggingar óskað eftir vottorðinu fyrir einstaklinginn. Hafa þarf samband við alþjóðamál Sjúkratrygginga og leggja inn beiðni um slíkt.

Hægt er að skila inn S1 vottorðum á tölvupósti (international@sjukra.is) eða póstleiðis (Sjúkratryggingar alþjóðamál, Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík).

Ef læknisaðstoðar er leitað eiga þeir að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu sem þeir fá útgefið í sínu tryggingalandi. Sé einstaklingur með skráð S1 vottorð þá hefur hann rétt á að fá alla þjónustu sem sjúkratryggður einstaklingur á Íslandi og þarf því ekki að notast við evrópska sjúkratryggingakortið hér á landi.

Ólíkar reglur gilda um atvinnu- og dvalarleyfi eftir því hvort fólk kemur frá ríkjum innan eða utan EES.

Útlendingastofnun sér um útgáfu atvinnu- og dvalarleyfa.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar