Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur

Má ég hafa reiknað endurgjald á meðan ég er á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum?

Nei, það má ekki hafa reiknað endurgjald þegar þú ert með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Þú þarft að hafa samband við skattinn og láta loka því.

Maður sem starfar við eigin atvinnurekstur á að reikna sér endurgjald (laun) fyrir þá vinnu. Með þessi laun fer á sama hátt og almennar launagreiðslur til launþega, það er reikna þarf af þeim staðgreiðslu opinberra gjalda, greiða tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.