Tryggingastofnun: Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur
Get ég fengið kort eins og örorkuskírteini til að sýna fram á að ég sé á endurhæfingargreiðslum?
Nei því miður, TR gefur ekki út kort eða skírteini til þeirra sem eru á endurhæfingargreiðslum. Ef þú þarft að sýna fram á að þú sért með endurhæfingarmat í gildi þá er hægt að sýna bréfið sem birtist á Mínum síðum þegar matið er samþykkt, þar kemur fram tímabilið sem matið er í gildi.