Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur

Hvernig sæki ég um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar ég er í endurhæfingu?

Eftirfarandi gögn þurfa að liggja fyrir áður en sótt er um; læknisvottorð og endurhæfingaráætlun. Ef við á þarf að skila inn hvenær sjúkrasjóðsréttindum hjá stéttarfélagi lýkur/lauk. Sótt er um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í gegnum Mínar síður.

Ef sótt er um áframhaldandi sjúkra- og endurhæfingargreiðslu þarf að liggja fyrir endurhæfingaráætlun frá fagaðila áður en umsókn er fyllt út.