Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun: Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september 2025

Hvers vegna lækka greiðslur mínar við yfirfærslu í nýtt endurhæfingargreiðslukerfi?

Vegna þess að ef þú ert með greiðslur úr lífeyrissjóðum umfram frítekjumörk hafa þær áhrif á útreikning sjúkra- og endurhæfingargreiðslna í nýju kerfi til lækkunar. Það getur leitt til þess að greiðslur lækki miðað við núverandi greiðslur eða falla niður. Þetta á nær eingöngu við um einstaklinga sem eru með tiltölulega háar greiðslur úr lífeyrissjóði. Almennt frítekjumark vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna er 40.000 krónur á mánuði og sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna er 160.000 krónur á mánuði.

Viðbótarlífeyrissparnaður hefur þó ekki áhrif á upphæðir sjúkra- og endurhæfingargreiðslna.