Tryggingastofnun: Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september 2025
Hvernig er greiðsluréttur minn reiknaður út í nýju kerfi?
Fullar greiðslur og frítekjumörk frá 1. september verða eftirfarandi - sjá hér.
Áhrif tekna eru 45% eftir að frítekjumörkum hefur verið náð. Athygli er vakin á því að í samræmi við nýtt kerfi leggjast greiðsluflokkarnir sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og heimilisuppbót saman, ef við á, og svo eru dregin 45% af tekjum umfram frítekjumörk af þeirri fjárhæð. Því birtist ein samtala í greiðsluáætlun.
Dæmi:
Einstaklingur með rétt á heimilisuppbót.
Atvinnutekjur: 200.000 krónur á mánuði.
Fjármagnstekjur (vextir af innistæðum): 10.000 krónur á mánuði
Greiðsluréttur hans í nýju kerfi er:

Sjá má á dæminu hér fyrir ofan að atvinnutekjur eru 200.000 krónur og fjármagnstekjur 10.000 krónur á mánuði. Frítekjumark atvinnutekna er 160.000 kr. sem dregst frá og almennt frítekjumark er 40.000 kr. sem dregst einnig frá. Því eru viðmiðunartekjur umfram frítekjumörk 10.000 kr. Af þeirri fjárhæð er reiknuð 45% skerðing sem nemur þá 4.500 krónum. Heildargreiðsla fyrir skerðingu er samtals 462.049 krónur. Af því eru dregnar 4.500 krónur og því eru sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og heimilisuppbót 457.549 krónur.