Fara beint í efnið

Hvernig fields geturu gert?

Hér eru allar þær gerðir af field sem hægt er að gera:

Drop down

Fellilisti þar sem hægt er að bæta óendanlegu magni af orðum á listann. Einungis er hægt að velja eitt atriði.

Text

Textabox sem gerir þér kleift að skrifa hvað sem er í lítinn reit.

Checkbox

Hak sem þú getur skírt ákveðnu nafni og þá er hægt að haka og afhaka á ticketnum.

Number

Reitur þar sem þú getur einungis sett inn tölur með engri kommu.

Multi-line

Stærra textabox.

Date

Reitur fyrir dagsetningu.

Multi-select

Sama og dropdown nema þú getur valið fleiri en eitt atriði.

Decimal

Reitur fyrir tölur þar sem þú getur haft einn tölustaf á eftir kommu.

Regex

Texta reitur sem þú skilgreinir fyrir fram með regex kóða hvað má skrifa í reitinn. Eins og til dæmis ef við setjum upp reit þar sem einungis mætti setja inn netföng, þá myndi ég setja inn þennan regex kóða: [a-zA-Z0-9._%-]+@[a-zA-Z0-9.-]+\.[a-zA-Z]{2,6}

Þá gæti ég sem starfsmaður ekki slegið neitt inn í þennan reit nema að það hefði sömu uppbyggingu og netfang, það er að segja einhverjirstafirogtölurjafnvel@eitthvaðemail.com

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Þjón­ustu­kerfi fyrir stofn­anir

Ertu með ábendingu eða spurningu?