Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Lán til einstaklinga
Hvaða íbúðir má kaupa með hlutdeildarláni?
Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum hagkvæmum íbúðum sem hafa verið samþykktar af HMS.
Í undantekningartilvikum eru eldri íbúðir utan höfuðborgarsvæðisins samþykktar ef þær hafa verið gerðar upp sem nýjar.
Á fasteignavefum eins og fasteignir.is og mbl.is getur þú leitað eftir íbúðum sem falla undir skilyrði fyrir hlutdeildarlán. Það gerirðu með því að velja nánari leitarskilyrði og haka við eða setja „hlutdeildarlán” í textaleit.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?