Fara beint í efnið

Ísland.is

Leiðtogafundur Evrópuráðsins

Dagana 16. og 17. maí 2023 fer leiðtogafundur Evrópuráðsins fram í Hörpu í Reykjavík.

Leiðtogafundurinn

15. maí 2023

Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu 16. og 17. maí, en áhrifa hans er þegar farið að gæta eins og sést á meðfylgjandi mynd úr Austurstræti frá því í gær.

bilastæði

Ætla má að leiðtogafundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. Af öryggisástæðum verða götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja meðan á fundinum stendur, en hægt verður að fara um svæðið gangandi og á hjóli. Þetta á hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem verður lokað almenningi.

Þá má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Áhrifin verða hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum. Vegfarendum á höfuðborgarsvæðinu er því vinsamlegast bent á að áætla lengri ferðatíma en venjulega til að aka á milli staða dagana sem leiðtogafundurinn fer fram. Þetta á líka við um vegfarendur sem hyggjast aka um Reykjanesbraut, það er á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins þessa sömu daga – ekki síst flugfarþega.

Engar almenningssamgöngur verða innan lokunarsvæðisins. Strætó ekur eftir breyttum akstursleiðum á meðan á lokuninni stendur, það er frá kl. 21.00 mánudaginn 15. maí til kl. 19.00 miðvikudaginn 17. maí.

Nánar á heimasíðum stjórnarráðsins, lögreglunnar og Strætó.