Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Vefur Vinnueftirlitsins til Island.is

16. apríl 2024

Vinnuveftirlitið hefur flutt vef sinn vinnueftirlitid.is til island.is. Samhliða flutningnum hefur starfsfólk Vinnueftirlitsins yfirfarið allt efni með það fyrir augum að hafa það mannlegt, hvetjandi, skýrt og fræðandi.

Starfsfólk við vinnu utandyra

Vefur vinnueftirlitsins vinnueftirlitid.is er nú á island.is. Þar með er stigið mikilvægt skref í átt að því markmiði stjórnvalda að stafræn samskipti, í gegnum island.is, verði megin samskiptaleið hins opinbera við almenning og fyrirtæki og að hægt sé að eiga þau samskipti á einum stað.

Vinnueftirlitið er stolt af því taka þátt í þeirri vegferð með öðrum opinberum stofnunum og miða þannig að því að veita notendum framúrskarandi þjónustu á skilvirkan og hagkvæman hátt.

Samhliða flutningnum hefur starfsfólk Vinnueftirlitsins yfirfarið allt efni með það fyrir augum að hafa það mannlegt, hvetjandi, skýrt og fræðandi. Er það von okkar að efnið gagnist atvinnurekendum, stjórnendum og starfsfólki í að stuðla að því að öll komi heil heim, starfævina á enda.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439