Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Málþing um vinnustaðamenningu í skólum 12. mars

26. febrúar 2026

Vinnueftirlitið stendur fyrir málþingi um vinnustaðamenningu í skólum á Grand hóteli fimmtudaginn 12. mars næstkomandi frá klukkan 12.30 – 16.

Málþingið er haldið í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum á árunum 2023–2025.

Kannanir hafa gefið til kynna að starfsfólk í leik- og grunnskólum upplifir meira andlegt áreiti en starfsfólk í mörgum öðrum starfsgreinum, sem undirstrikar mikilvægi þess að hlúa þurfi sérstaklega að vellíðan þess og vinnuumhverfi. Niðurstöður samstarfsverkefnisins sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Tilgangur málþingsins er að miðla þeim lærdómi sem af verkefninu hlaust og gefa fleiri skólum tækifæri á að nýta hann.

Hægt verður að mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi en nánari dagskrá og skráning verður auglýst á næstu dögum. Endilega takið daginn frá.

Nánar má lesa um samstarfsverkefnið hér á vefnum. Þar má jafnframt nálgast skýrslu um hugmyndafræðilegan bakgrunn þess, framkvæmd og mat á árangri.