Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Lengi býr að fyrstu gerð – eflum þekkingu ungmenna á mikilvægi vinnuverndar

27. mars 2023

Ungt fólk sem er að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði þarf að þekkja hvað einkennir góðan vinnustað þar sem stuðlað er að öryggi, góðri heilsu og vellíðan starfsfólks. Með því að gera ungmenni betur í stakk búin til að gæta að eigin öryggi og vellíðan í starfi stuðlum við að aukinni sjálfbærni á vinnumarkaði.

Vinnueftirlitið-þekking ungmenna á mikilvægi vinnuverndar

Í þeim tilgangi hefur Vinnueftirlitið tekið þátt í að gera samnorrænt kennsluefni um vinnuumhverfi ætlað ungmennum. Efnið er aðgengilegt á íslensku. Markmiðið  er að ungt fólk þekki hvað einkennir góðan vinnustað þar sem stuðlað er að öryggi, góðri heilsu og vellíðan. Áhersla er lögð á gildi forvarna en því miður eru vinnuslys algengust hjá ungu fólki. 

Mikilvægt er að stuðla að öryggisvitund einstaklinga sem eru að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Það styður þá í að eiga þátt í góðri vinnustaðamenningu, þar á meðal öryggismenningu og er þá bæði átt við líkamlegt og sálfélagslegt öryggi. Þetta getur skipt sköpum þegar kemur að því að eiga farsæla starfsævi.

Þó atvinnurekendur beri ábyrgð á því að skapa ungmennum, sem og öðrum, öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi í samræmi við lög og reglur skiptir afar miklu máli að þau hafi sjálf þekkingu á áhættuþáttum í vinnuumhverfinu sem gætu ógnað öryggi þeirra og heilsu til skemmri eða lengri tíma. 

Efninu er skipt upp í sex kennslustundir en hverri kennslustund fylgja myndbönd, kennsluglærur, kennsluleiðbeiningar og verkefni á öllum norðurlandamálunum. Efnið er ætlað til kennslu í efstu bekkjum grunnskóla en er öllum opið og getur jafnframt nýst á framhaldsskólastigi.  

Norrænn verkefnahópur vann kennsluefnið en þar áttu sæti framhaldsskólakennari, náms- og starfsráðgjafi, sérfræðingur á sviði vinnuumhverfis og sérfræðingar í upplýsingamiðlun og greiningum. Kennsluefnið hefur verið prófað með nemendum í efstu bekkjum grunnskólans við Þekkingarakademíuna í Sundsvall í Svíþjóð. 

Vinnueftirlitið hvetur skóla, forráðamenn og öll sem koma að fræðslu ungmenna til að kynna sér efnið og ræða við þau um mikilvægi vinnuverndar. Þannig má leggja grunn að því að öll komi heil heim, starfsævina á enda. 

Kennsluefnið er aðgengilegt á vef Vinnueftirlitsins og á vefnum norden.org

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439