Rafræn samskipti
Sýslumenn geta boðið upp á að viðtöl eða fyrirtökur fari fram með rafrænum hætti við meðferð fjölskyldumála, lögráðamála og dánarbúsmála. Óska skal eftir því að viðtal eða fyrirtaka fari fram með rafrænum hætti en sýslumaður metur hvort orðið skuli við slíkri beiðni.
Sýslumaður notar fjarfundabúnað fyrir viðtalið og sendir fundarboð með tölvupósti. Skjöl í fyrrgreindum málaflokkum er jafnframt hægt að undirrita með rafrænum og öruggum hætti. Leyfisbréf, staðfestingar og önnur skjöl er hægt að fá send í pósthólf málsaðila á Ísland.is.
Hvað þarf fyrir rafræn samskipti?
Tölvu eða snjallsíma með myndavél
Netfang
Rafræn skilríki
Afhending gagna í pósthólfi island.is
Sýslumenn geta afhent einstaklingum skjöl með því að senda þau inn í pósthólf hjá Ísland.is.
Þetta er hægt í fjölskyldumálum, ættleiðingarmálum, dánarbúsmálum. Fleiri málaflokkar bætast við á næstunni.
Hvað þarf til að móttaka skjal?
Unnt er að óska eftir hnippi frá Ísland.is þegar skjal berst í pósthólfið.