Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Hvenær má vinna með heilbrigðisupplýsingar?

Vinnsla heilbrigðisupplýsinga er almennt óheimil nema sérstök heimild sé fyrir hendi

Algengasta heimildin er skýrt og upplýst samþykki hins skráða, en einnig getur vinnsla verið heimil ef hún er nauðsynleg vegna heilbrigðisþjónustu, almannahagsmuna á sviði lýðheilsu eða samkvæmt öðrum skýrum lagaákvæðum. Samþykki þarf að vera frjálst, sértækt og hægt að draga það til baka hvenær sem er.

Hvenær má vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar?

Á vefsvæði Persónuverndar

Meginreglur og öryggi við vinnslu

Við vinnslu heilsufarsupplýsinga skal ávallt fylgja meginreglum persónuverndarlaganna, svo sem um sanngirni, gagnsæi, meðalhóf og tilgang vinnslu. Eingöngu skal vinna þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar hverju sinni og tryggja að þær séu réttar og uppfærðar. Jafnframt þarf að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang, eyðingu eða leka upplýsinga.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820