Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Börn og persónuvernd

Börn eiga rétt á friðhelgi einkalífs og persónuvernd rétt eins og fullorðnir, bæði innan heimilis og utan. Þessi réttur er tryggður í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, stjórnarskránni og persónuverndarlögunum. Foreldrar, forráðamenn og aðrir sem annast börn eiga að þekkja þennan rétt barna.

Persónuupplýsingar barna njóta sérstakrar verndar, þar sem þau eru almennt síður meðvituð um áhættu og afleiðingar í tengslum við vinnslu slíkra upplýsinga sem og eigin réttindi.

Þar sem börn þurfa að njóta sérstakrar verndar ættu hvers kyns upplýsingar og tilkynningar, þegar vinnsla beinist að barni, að vera á skýru og einföldu máli sem barnið getur auðveldlega skilið.

Réttur barna

Börn njóta aukinnar verndar þar sem þau eru talin síður meðvituð um áhættu, afleiðingar og réttindi sín þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga.

Heimildir til vinnslu persónuupplýsinga barna

Samþykki, framkvæmd samnings, samkvæmt heimild í lögum, almannahagsmunir.

Myndbirtingar og umfjöllun um börn á netinu

Birting ljósmynda og myndbanda á netinu kallar á ábyrgð og aðgát, sérstaklega þegar hægt er að greina einstaklinga á myndefninu.

Vinnsla persónuupplýsinga um börn í skólum, frístund og tómstundastarfi

Skólar og aðrir aðilar sem koma að frístunda- og tómstundastarfi barna þurfa að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga samræmist lögum um persónuvernd og þurfa að geta sýnt fram á það.

Markaðssetning gagnvart börnum

Börn eiga að njóta sérstakrar verndar þegar persónuupplýsingar þeirra eru notaðar í markaðssetningu.

Leiðbeiningar og tilmæli vegna vinnslu persónuupplýsinga barna

Hlekkir á leiðbeiningar og tilmæli.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820